Þær hætta víst ekkert að stækka, snúllurnar okkar…
13 vikna í dag og orðnar alveg þvílíkt stórar. Svo stórar að mamma sá sig tilneydda að klæða dömurnar í sparikjóla í dag bara til að geta sagt að þær hafi einhvern tímann farið í þá. Að sjálfsögðu tók pabbi sig til og smellti af nokkrum myndum sem við ætlum að láta fylgja hérna að meðtaldri eins og einni skírnarkjólamynd sem við tókum í gær heima hjá Ömmu og Afa í Suðurenginu í gær.
svo sætar!
Oohh þær eru svo miklar dúllur 🙂 Ívari finnst þær “algjör sætar” 😉
Biðjum að heilsa í kotið
kveðja úr Hafnarfirðinum
Við Tara Dís erum að skoða ykkur núna. Til hamingju mrð 3 mánuðina.
æ þær eru svoooo sætar, megakrútt, kv Katrín
Váááá ekkert smá fínar og það leikur enginn vafi á því að þið eru flottustu skvísurnar í bænum. (Y) 😉