Það er kannski svolítið seint að setja myndirnar inn núna en betra seint en aldrei. Við fórum í myndatöku hjá Gunnari Nielsen og hann tók þessar fínu myndir af okkur skötuhjúum. Maður sér það svona eftir á hvað ég var orðin feit í framan og og öll útblásin af bjúg. Endilega kíkið á myndirnar.
Comments are closed.
Þetta eru æðislegar myndir af þér Brynja. Þú hreinlega geislar. En ég verð að viðurkenna að það er obbolítið antíklímatískt fyrir mig að sjá Gunna hálf beran á myndum á internetinu. Ég hef alveg verið með honum í sturtu en ég hélt að það myndi stoppa þar. Von að ég jafni mig með kvöldinu.