Skaðræðis börn

Jiminn jiminn jiminn, nú er allur fjandi laus. Skæruliðarnir á þessum bæ eru annsi skæðir og stórhættulegir sjálfum sér. Það er klifrað upp á allt sem hægt er að klifra upp á. Það er klifrað upp á skiptiborð, upp í barnamatarstólana, upp á eldhúsborð, upp á sjónvarpsskenk og ekki má gleyma því nýjasta sem er að klifra upp í koju. Það stoppar í manni hjartað að horfa á þær klifra þarna upp því þetta er há koja. Ég henti inn nokkrum myndum af skottunum svo þið sjáið sjálf hvað ég er að tala um. Annars er allt gott að frétta hér og þær dafna vel.