23 vikur og við á leið í sumarbústað.

Það er föstudagur og við litla fjölskyldan í Krókavaðinu erum á leið í sumarbústað á Kirkjubæjarklaustri með familíunni minni(Brynju). Þau á Ljósmóðir.is vilja meina að ég eigi að vera orðin ansi þung á mér núna en mér finnst ég svo létt á mér nema kannski á kvöldin því þá er ég eins og afvelta belja …

Sónarmyndir

Við hjónaleysin fórum í heimsókn til Kalla og Hjördísar og fengum þau til að skanna inn fyrir okkur allar sónarmyndirnar okkar. Afraksturinn má sjá í albúminu okkar en hérna fyrir neðan er samt smá sýnishorn 😉 Fyrir þá sem ekki átta sig á þessari mynd þá eru þetta tvíburarnir, liggjandi hlið við hlið.